Lærðu að deila verkum þínum með þeim
vefsamfélögum sem leyft hafa Creative Commons afnotaleyfi.
Creative Commons eru félagasamtök sem ekki eru rekin í ágóðaskyni.
Við þurfum ykkar stuðning til þess að geta haldið áfram að bjóða þjónustu okkar.
Sýnið stuðning í dag!
Leyfa breytingar á verki þínu?
Já
Leyfisveitandi leyfir öðrum að afrita, dreifa, sýna og framkvæma verkið, sem og að afleidd verk séu byggð á því.
Já, svo lengi sem aðrir deila eins
Leyfisveitandi heimilar öðrum að skapa afleidd hugverk og dreifa þeim en aðeins undir sama eða sambærilegu afnotaleyfi.
Nei
Leyfisveitandinn heimilar öðrum að afrita, dreifa eða spila/sýna þetta verk en aðeins í upphaflegri mynd þess. Óheimilt er að breyta því eða búa til afleidd verk sem byggja á því.
Leyfa hagnýtingu verksins i ágóðaskyni?
Já
Leyfisveitandi leyfir öðrum að afrita, dreifa, sýna og framkvæma verkið, þar á meðal í viðskiptalegum tilgangi.
Nei
Leyfisveitandi leyfir öðrum að afrita, dreifa, sýna og framkvæma verkið nema í viðskiptalegum tilgangi.
Lögsaga afnotaleyfis
Notaðu möguleikann „alþjóðlegt“ til þess að fá nýjustu útgáfu leyfisins sem er jafnframt hlutlaus varðandi lögsögu og gild um allan heim. Ef leyfið hefur verið staðfært með tilliti til þinnar lögsögu þá viltu kannski frekar nota þá útgáfu ef hún tekur á einhverju álitaefni varðandi löggjöf í þinni lögsögu sem alþjóðlega útgáfan gerir ekki. Mörg staðfærðu leyfanna eru hins vegar ekki af nýjustu útgáfu CC-afnotaleyfanna (3,0). Þú ættir að velta því fyrir þér
hvaða útfgáfa hentar helst þínum þörfum.
Valið afnotaleyfi
„Valið leyfi“ ramminn birtir upplýsingar um afnotaleyfið sem lýst var „einkenni afnotaleyfis“ rammanum. Breying á því sem hér kemur fram uppfærir upplýsingar í hinum römmunum.
Samþykkt fyrir frjálsa menningu.
Ef valið afnotaleyfi uppfyllir þau skilyrði sem krafist er af frjálsri menningu, þá birtist „samþykkt fyrir frjálsa menningu íkon í þessum ramma. Þessi eiginleiki er til þess að aðstoða þig við að taka upplýsta ákvörðun. Afnotaleyfi sem fela í sér bann við notkun í ágóðaskyni og bann við afleiddum verkum uppfylla ekki skilyrði um frjálsa menningu.
Ófrjálsu afnotaleyfin geta verið gagnleg en notkun þeirra getur haft ófyrirséðar afleiðingar á borð við árekstra við önnur afnotaleyfi sem ekki eru samræmanleg. Verk undir afnotaleyfinu „Tilvísun-EkkiÁgóðaskyni-DeilaEins“ má til dæmis ekki nota í afleiddum verkum þar sem þau blandast við verk sem gefin eru út undir leyfinu „Tilvísun-DeilaEins“ vegna þess að leyfin eru ósamræmanleg vegna mismunandi skilmála um notkun í ágóðaskyni.
Raunverulegt dæmi árekstra afnotaleyfa er til dæmi að verk sem gefin er út með takmörkunum um notkun í ágóðaskyni eru ósamrýmanleg afnotaleyfi Wikipediu og má þvi ekki nota á þeim vettvangi.
Freedomdefined.org er frábær upplýsingabrunnur um frjálsa menningu.
Síðurnar um frjálsa menningu
og leyfðar takmarkanir
eru ágætir byrjunarreitir.
Titill verks
Titill verksins sem þú ert að gefa út með leyfinu.
Vísa til höfunda(r) með nafni.
Nafn einstaklings sem ætti að vísa til sem höfundar. Oftast er það höfundurinn.
Vísa til höfunda(r) með veffangi.
Veffangið sem vísa ætti á um verkið. Til dæmis síða um verkið á vefsvæði höfundarins.
Veffang frumverks.
Veffang verksins em þetta verk byggir á eða er leitt af.
Frekari heimildir veffang
Veffang þar sem notandi getur fundið upplýsingar um hvernig eigi að afla viðbótarleyf umfram það sem þegar er leyfilegt samkvæmt CC-afnotaleyfum.
Merki afnotaleyfis
„Merki afnotaleyfis“ ákvarðar innihald rammans neðst til hægri. Sá rammi sér þér fyrir leiðum til þess að merkja verk þín á samræmdan og staðlaðan hátt.
HTML + RDFa
HTML-kóði er í boði sem þú getur afritað á vefsíðuna þína. Kóðinn er búinn tölvulesanlegum lýsigögnum. Þetta gerir leitarvélum kleyft að finna verk með þessu og sambærilegum afnotaleyfum og ýmsum hugbúnaði mögulegt að þekkja upplýsingar um verkið (t.d. um höfund þess).
XMP
XMP skrá má innifela í ýmsum skrárformum eins og til dæmis PDF.
Ekki á vefnum
Býr til einfaldan texta til þess að merkja verk sem ekki eru á vefnum.
Ertu með vefsíðu?
HTML-kóðann í þessum ramma er hægt að afrita yfir á vefsíðu þína til þess að sýna hvaða afnotaleyfi gildir um verk þín auk upplýsinga um uppruna þess þannig að hægt sé að vísa í það með fullnægjandi hætti. HTML-kóðinn blandar saman upplýsingunum sem þú gafst upp á „eiginleikar afnotaleyfis“ og „aðstoðaðu aðra við að vísa til þín!“ römmunum. HTML-kóðinn inniheldur jafnframt RDFa lýsigögn sem gera leitarvélum kleyft að sjá hvaða afnotaleyfi gildir um verkið og hvernig þú vilt að vísað verði til uppruna verksins.
Þessi rammi inniheldur forsýn af því hvernig HTML-kóðinn mun líta út þegar hann hefur verið innifalinn á vefsíðunni þinni. Valtakkana neðst í rammanum má nota til þess að breyta útliti og stærð afnotaleyfishnappsins í HTML-kóðanum.
Vísun til höfundar
Þú verður að vísa til uppruna verksins
á þann hátt sem leyfisveitandi eða höfundur tilgreinir.
Deila eins
Leyfisveitandi heimilar öðrum að dreifa afleiddum verkum samkvæmt sama afnotaleyfi eða sambærilegu því sem gildir um frumverkið.
Engin afleidd verk
Leyfisveitandinn heimilar öðrum að afrita, dreifa eða senda út verkið í óbreyttri mynd — ekki afleidd verk sem byggð eru á því.
Ekki í ágóðaskyni
Leyfisveitandi heimilar öðrum að afrita, dreifa og senda verkið. Á móti má leyfishafi ekki nota verkið í ágóðaskyni nema með sérstöku leyfi leyfisveitanda.